Tuesday, November 15, 2011

Þetta gekk vel

Ég ap blogga hefur svosem aldrei verið góð hugmynd eins og sást á seinustu tilraun. Fyrst bloggið kom í júlí og svo ekkert meir..núna hef ég þó einhverja ástæðu til þess að blogga.
Stefnan eftir M.A. var alltaf að skella mér í reisu til Suður-Ameríku en eitthvað klikkaði það. Ég fann mér hinsvegar nýtt verkefni og næsta mánuðin þá get amk eitthvað bloggað um það. Svona fyrir fólkið mitt til að fylgjast með.

Eftir rétt tæpar 3 vikur verð ég komin til Gweru í Zimbabwe þar sem ég er að fara að vinna sjálfboðavinnu með ljónum í Antelope Park.það er svo sem ekki amalegt. Verð reyndar bara úti í mánuð sem er allt of stutt. Ég vildi óska að ég gæti verið þarna í ár! Ég finn mér eitthvað annað að gera þegar ég kem heim.
Þetta mun verða upplifun sem ég mun líklega seint gleyma og spenningurinn er alveg í hámarki.

Vinnan felst semsagt aðalega í því að fara út að labba með ljónsunga og þeir elstu eru orðinir 18 mánaða gamlir og það er sko ekkert lítil dýr.
En ég ætlaði bara svona að starta þessu bloggi og minna sjálfan mig á.
Undirbúningurinn minn er í fullum gangi og næsta blogg verður örugglega ekkert fyrr en svona rétt áður en ég fer eða bara jafnvel eftir að ég er komin út. Það kemur bara í ljós.
Vona bara að vinir og vandamenn verði duglegir við að kommenta svo ég verði enn duglegri við að henda inn bloggi á meðan ég er úti.

- Elísabet

1 comment:

  1. Þetta verður geðveikt hjá þér og ég mun sko fylgjast með þessu bloggi :D Mundu bara að skemmta þér í botn allan tíman sem þú ert þarna því þetta á eftir að líða svo hratt.

    Lovyou Auður Jóna

    ReplyDelete