![]() |
| Ég og Ida með gíröffunum. |
Á meðan ég bíð eftir því að komast aftur til Afríku ætla ég heldur alls ekki að standa auðum höndum. Ég er seinustu daga búin að vera að gera plan um fjáröflun sem ég ætla að halda fyrir samtökin ALERT (The African Lion & Environmental Research Trust) www.lionalert.com.
Ég er þegar komin með tvær hugmyndir sem ég ætla mér að hrinda í framkvæmd.
Í fyrsta lagi ætla ég að halda góðgerðartónleika. Byrja á Akureyri og sjá hvernig gengur og aðra í Reykjavík. Í öðru lagi þá ætla ég að hjóla hringinn í krinum landið...ég er ekki að grínast. Ég, sú manneskja sem er í versta formi á öllu Íslandi, ætla að hjóla hringveginn í sumar. Þannig þið megið búa ykkur undir það að fara að sjá mig púla á spinning hjólinu næstu mánuði. Ég held að þetta sé ein mesta áskorun sem ég hef nokkurn tíman þurfa að sigrast á en með réttu hugarfari og stuðning frá góðu fólki þá virkilega trúi ég því að mér muni takast þetta.
Báðar hugmyndir eru báðar á algjöru grunnstigi og kannski mun eitthvað af þessu mistakast algjörlega en ég á mögulega eftir að fá helling af öðrum hugmyndum sem ég mun vonandi reyna að hrinda í framkvæmd líka.
Planið er að reyna að halda áfram að blogga og leyfa ykkur að fylgjast eitthvað með hvernig gegnur og leyfa ykkur að hlægja að mistökum mínum og gleðjast með mér yfir því sem mun ganga upp.
Takk í bili
- Elísabet
