![]() |
| Hitti þessi tvö eftir 4 daga. |
Þegar ég ákvað það að ég væri að fara til Zimbabwe tók það svolítið langan tíma að síast inn að það væri í alvöru að fara að gerast. Mér hefur alltaf fundist þetta svo ótrúlega óraunverulegt og undarlegt að ég sé að fara að vera þarna.
Í gærkvöldi þá gerðist það loksins að tilhlökkunar tilfinningin bara helltist yfir mig. Á eftir því fylgdi svo kvíðakast með smá paniki því ég áttaði mig á því hvað ég á eftir að gera mikið. En eftir að ég lá andvaka í klukkutíma hugsa hvað í annskotanum ég hefði verið að hugsa að leggjast í svona ferðalag ein þá settist ég við tölvuna og gerði smá to-do lista. Þá komst ég að því að ef ég fæ sjálfan mig til að vera skipulögð bara í einn dag...þá ætti þetta nú að reddast. Þá róaðist ég nú aðeins niður. Nú er ég amk komin á ról...klukkan er 7.15 og ég hef allan daginn til að redda þessu öllu.
Þvo eitthvað af fötum
Ná í ferðatösku
Pakka niður
Kaupa malaríutöflur (þar fer hálfur handleggurinn =( )
Fara til Hödda og fá nýja tónlist inná Ipodin
Taka smá til hérna heima
Taka afrit af vegabréfinu mínu og öðrum skjölum.
Kaupa svona rafmagnsstykki til að breyta innstungum.
Redda gjaldeyri (geri það samt örugglega fyrir sunnan)
![]() |
| Þarna sést yfir eitthvað af svæðinu þar sem ég verð |
Á laugardaginn ætla ég að reyna að redda öllu þessu allra seinasta, kaupa mér regnjakka og svona krúttlegheit. Svo á sunnusagmorgunin skutlar Sigurgeir mér á keflavíkurflugvöll þar sem ég þarf að kveðja hann (gagni mér vel). Flýg svo til London þar sem ég þarf að bíða á flugvellinum í góða 8 tíma. Gott að ég hef tónlist í eyrum og Games of thrones að lesa. Síðan flýg ég í 14 tíma til Nairobi í Kenýa. Er frekar stressuð með stuttan tíma á milli flugsins þar..bara tæpir tveir tímar...ég vona svo innilega að það reddist. Svo er flogið til Harare í Zimbabwe þar sem tekur við um 4 tíma akstur held ég. Enda í Antelope park rétt hjá Gweru í miðju landinu. Verð orðin mega hress eftir það ferðalag.
En já það eru aðeins 3 dagar í brottför, sem þíðir að það er 1.des og pabbi á afmæli í dag. Hlakka til að knúsa þann gamla á morgun.
En já þetta er allt í bili, blogga næst þegar ég er komin á staðinn
Mun sakna ykkar allra og ég lofa að ég fer varlega...miðað við klaufaskapin í mér þá eru víst einhverjir með áhyggjur af mér.
=)

