![]() |
| Hitti þessi tvö eftir 4 daga. |
Þegar ég ákvað það að ég væri að fara til Zimbabwe tók það svolítið langan tíma að síast inn að það væri í alvöru að fara að gerast. Mér hefur alltaf fundist þetta svo ótrúlega óraunverulegt og undarlegt að ég sé að fara að vera þarna.
Í gærkvöldi þá gerðist það loksins að tilhlökkunar tilfinningin bara helltist yfir mig. Á eftir því fylgdi svo kvíðakast með smá paniki því ég áttaði mig á því hvað ég á eftir að gera mikið. En eftir að ég lá andvaka í klukkutíma hugsa hvað í annskotanum ég hefði verið að hugsa að leggjast í svona ferðalag ein þá settist ég við tölvuna og gerði smá to-do lista. Þá komst ég að því að ef ég fæ sjálfan mig til að vera skipulögð bara í einn dag...þá ætti þetta nú að reddast. Þá róaðist ég nú aðeins niður. Nú er ég amk komin á ról...klukkan er 7.15 og ég hef allan daginn til að redda þessu öllu.
Þvo eitthvað af fötum
Ná í ferðatösku
Pakka niður
Kaupa malaríutöflur (þar fer hálfur handleggurinn =( )
Fara til Hödda og fá nýja tónlist inná Ipodin
Taka smá til hérna heima
Taka afrit af vegabréfinu mínu og öðrum skjölum.
Kaupa svona rafmagnsstykki til að breyta innstungum.
Redda gjaldeyri (geri það samt örugglega fyrir sunnan)
![]() |
| Þarna sést yfir eitthvað af svæðinu þar sem ég verð |
Á laugardaginn ætla ég að reyna að redda öllu þessu allra seinasta, kaupa mér regnjakka og svona krúttlegheit. Svo á sunnusagmorgunin skutlar Sigurgeir mér á keflavíkurflugvöll þar sem ég þarf að kveðja hann (gagni mér vel). Flýg svo til London þar sem ég þarf að bíða á flugvellinum í góða 8 tíma. Gott að ég hef tónlist í eyrum og Games of thrones að lesa. Síðan flýg ég í 14 tíma til Nairobi í Kenýa. Er frekar stressuð með stuttan tíma á milli flugsins þar..bara tæpir tveir tímar...ég vona svo innilega að það reddist. Svo er flogið til Harare í Zimbabwe þar sem tekur við um 4 tíma akstur held ég. Enda í Antelope park rétt hjá Gweru í miðju landinu. Verð orðin mega hress eftir það ferðalag.
En já það eru aðeins 3 dagar í brottför, sem þíðir að það er 1.des og pabbi á afmæli í dag. Hlakka til að knúsa þann gamla á morgun.
En já þetta er allt í bili, blogga næst þegar ég er komin á staðinn
Mun sakna ykkar allra og ég lofa að ég fer varlega...miðað við klaufaskapin í mér þá eru víst einhverjir með áhyggjur af mér.
=)


það á eftir að vera svo gaman hjá þér :) alveg pinu vottur af öfund hérna megin, og þessi taður er svoo flottur. Ég mun fylgjast vel með blogginu þínu, er strax farin að hlakka til þess þegar þú kemur heim í janúar;*
ReplyDeleteSæl elsku krúsin mín.
ReplyDeleteEr strax farin að sakna þín. Svaf ekkert í nótt af áhyggjum af ferðalaginu þínu framunda he he. En ég treysti þér til að fara varlega í öllu. Reyndu nú að njóta alls þess sem þú átt eftir að upplifa með opnum huga, því þetta getur orðið pínu menningarsjokk að koma til Afríku en éins og þú veist heillaðist ég fyrir 29 árum og ég vona að eins verði með þig kellingin mín. Góða ferð áfram
mamma.
Sæl EB mín.
ReplyDeleteÞað var svo sem lítið gert þann daginn sem þú hélst af stað, sá þig í huga mínum, lent á Heathrow, þessum stóra flugvelli, þar sem milljónir manna fara um, nafnlaus andlit er koma og fara, sumir gangandi aðrir á hlaupum, með töskur um sig þvera, er sveiflast til allra átta. Þú, búin að finna terminal 4, sem reyndist þrátt fyrir allt, svo einfalt, veitti þér öryggiskend að vera komin þar. Síðan biðin....eða eins og þú sagðir, er við spjölluðum sama..."mér leiðist nú hálvegis, ég hér og þekki engan, ókunnug meðal alls þessa fólks" Væri óeðlilegtef svo væri ekki. Ég vona að flugið yfir álfur og lönd, há fjöll og víð höf, hafi verið ánægjulegt, jafnvel þó það hafi borið þig lengra frá litlu eyjunni í noðri.
Njóttu tímans þarna á grösugu steppunum, tími sem gæti hugsanlega breytt sýn þinni til lífsins. Njóttu verunar á meðal dýra sem hafa sofið í huga þínum, en eru allt í einu vöknuð, njóttu menningarinnar, fólksins og náttúrunnar.
Pabbi