Monday, July 25, 2011

Reynum þetta

Nú veit ég ekki alveg hvernig ég ætla að byrja þetta eða hvort ég ætti í raun að byrja þetta. Þessi hugmynd um blogg er mjög líklega bara eitthvað sem ég fékk í hausinn nú í kvöld því ég er andvaka og með hita.

Það er svo ótrúlega margt sem er í gangi í hausnum á mér þessa dagana að ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég muni ekki komast neitt áfram í lífinu nema með því að reyna að koma þessu öllu eitthvað aðeins útfyrir hausinn á mér.

Það sem ég mun koma til með að fjalla um (ef þetta verður ekki eina bloggið)

Tónlist (og draumar mínir á því sviði)
Ferðalög (og draumar mínir á því sviði)
Líkamsrækt (og draumar mínir á því sviði)
Framtíðin og pælingar (ég stend nefnilega á tímamótum sjáðu til)
og örugglega hellingur í viðbót.

Ég á nefnilega mikið af draumum. Alltof mikið af draumum. En staðreyndin er sú að ég hef eiginlega alltaf verið "think-er" en ekki "do-er". Í allt of langan tíma hef ég HUGSAÐ mikið um að fara að drattast á lappir og gera eitthvað í mínum málum. Þetta hérna er fyrsta skrefið. Ég veit reyndar að sárafáir eiga eftir að koma til með að lesa þetta blogg en þetta er líka kannski meira hugsað fyrir sjálfan mig.

Klárlega minn besti vinur

Tölvan mín er eitthvað sem ég ætla að ræða. Hún er fjögurra ára gömul og er að hruni komin greyið. Fyrir rúmlega ári helltist bjór yfir hana og síðan þá virka ekki fjórir takkar á lyklaborðinu (punktur og komma og hliðartakkarnir tveir). Punktur er búinn að vera til reyðu á C/P í gegnum allan 4.bekk og ég er orðin snillingur í að skrifa texta þar sem ég kemst upp með að nota sem fæstar kommur. Síðan ákvað bróðir minn að velta sér yfir tölvuna í svefni og brjóta hana og síðan þá er hún orðin stórskemmd. Hið vinsæla "Rainbow wheel" er líka tíður gestur á skjánum og stundum þegar hún fær algjört kast nægir eitt klikk á milli þess sem þetta elskulega merki birtist!
Er ég búin að fara með tölvuna í viðgerð? Jaaá neei. Einhvernvegin hefur það ekki komist að í minni tilveru. Hef auðvitað hugsað um það svona um það bil þrisvar á dag. Fæ samt smá svimakast þegar ég hugsa um hvað það muni kosta en kannski er líka komin tími á nýja tölvu. Ég þarf eitthvað að hugsa þetta.

En to do listi fyrir næstu mánuði
... kaupa mér myndavél
... byrja í ræktinni (hversu oft hef ég sagt þetta)
... undirbúa suður-ameríku reisuna (it's gonna happen)
... finna heimili fyrir Ísis
... kynna mér nýja tónlist
... fara með tölvuna í viðgerð

Ef einhver kemur til með að fylgjast með þessu bloggi má sá hin sami minna mig regluega á þessa hluti. Ég á það til að geyma...og fresta hlutum.

og enn held ég áfram að auglýsa
Þetta er Ísis. Hana vantar heimili sem fyrst.


Ég ætla að ljúka þessu í kvöld.
- Elísabet