Hallo hallo!
Eg er i sma frii fyrir hadegi i dag tannig ad eg akvad ad blogga sma.
Sidustu dagar haf verid frabaerir. I gaer for allur dagurinn i ad laera a hestana herna. Byrjudum daginn a ad gefa teim ad borda og snyrta ta og endudum a ad fara i reidtur um gardin. Er ad drepast i rassinum eftir tennan dag en tetta var otrulega gaman. Saum reyndar ekki mikid af dyrum, bara zebrahesta og antilopur.
Eg er buin ad kynnast ollum ljonsungunum sem eru herna nuna og teir eru fjorir. Laili og Lewa eru badar i kringum eins ars og Paza og Penya eru adeins yngri. Paza er mogulega mesta krutt sem eg hef sed. Hun elskar ad lata klora ser er otrulega ljuf. Laili er svo otrulega falleg, augun hennar eru svo stor og taer. Elska ad horfa a hana. Er buin ad fara nokkrum sinnum ad labba med taer. Laili og Lewa fara saman og Paza og Penya fara saman. Tilfinningin ad labba med ljonum er otruleg. Eg a myndir af mer tar sem eg er ad rolta og Lewa og Laili eru sitthvorum megin vid mig ad reyna ad fa klapp. Aldrei hefdi mer dottid i hug ad tetta vaeri eitthvad sem eg aetti eftir ad gera. Madur verdur samt ad fara rosalega varlega i kringum ljonin. Tau eiga tad til ad reyna ad rulla ser og reyna ad tosa mann til sin bara til ad leika, en leikur med teim er ekki beint oruggur.
Tad er svo otrulega margt ad segja fra og ekki sens ad eg geti komid tvi ollu nidur i eitthvad blogg.
I fyrradag for eg til daemis ad moka filakuk. Tad var gedveikt. A nottuni eru filarnir geymdir i girdingu og tad sem eg turfti ad gera var ad hreinsa girdinguna teirra. Teim var ekki hleypt ut a medan...og plassid er pinulitid. Eg var bara ad moka kuknum a medan filarnir voru ad tjilla vid hlidin a mer. Venjulegur dagur bara. A eftir fer eg ad trifa burin tar sem storu ljonin eru geymd. Tau eru reyndar faerd a medan. Er ekki viss um ad eg myndi vilja vera inn i buri med fullordnu ljoni. Held tad vaeri ekki kul.
I kvold er planad ad fara i siglingu nidur vatnid og horfa a solsetrid med bjor i hond. Tad verdur vonandi mjog gaman. Tad muna orugglega allir tegar eg var ad tala um ad eg myndi ekkert drekka herna uti...tad var vist einhver misskilningur. Folkid herna drekkur a hverju kvoldi. Vid sitjum vid vardeldin og drekkum bjor sem kostar 1 dal. Ekki slaemt. Elska stemmninguna tegar tad er ordid dimmst og madur heyrir i ollum dyrunum i kring og lyktina af vardeldinum.
Eg hef alltaf eitthvad ad gera herna..sum verkefnin eru frekar leidileg en samt eru tau tad ekki. Tott madur se a trifa ta er madur samt ad trifa i afriku og tad er ljon eda fill ad fylgjast med ter.
Hitin sidustu daga er buin ad vera sjukur. Eg fer a milli verkefna beint i sundlaugina ad kaela mig nidur. Elska tessa sundlaug. Algjor lifesaver. Tad er reyndar mjog fint vedur nuna. Tad fer ad koma rigning bradum. Tvi tad eru komin sky og komin sma vindur. Mjog vel tegid eftir sidustu daga.
En nettimin er ad klarast svo eg verd ad haetta i bili.
- Elisabet
Sæl elskan mín. Ég get ímyndað mér að sólsetrið, snarkið í varðeldinum og dýrahljóðin sem berast af sléttunum, sé engu líkt. Ómur frá næturdýrum, golan sem hrreyfir hárlokka og ilmurinn frá brenandi viðnum sem blandast anganum frá gresjunni og öðrum gróðri. Ég er feginn að þú nýtur þín þarna á meðal viltra dýra, þarna í vöggu mannskynsins, í ólíkri menningu, eins og draumur sem verður að raunveruleika, framandi dýr sem þú eitt sinn sást á myndum og í sjónvarpi, er allt í einu orðið staðreynd. Ganga með ljónum, eins og ekkert væri sjálfsagðara, ótrúlegt. Njóttu þessa tíma og farðu samt varlega.
ReplyDeletePabbi
Sæl elskan.
ReplyDeleteÉg tek undir með pabba þínum ég sé þetta allt fyrir mér og ég fer 29 ár aftur í tímann í Aboseli park í Kenya gerði nákvæmlega þetta sama nema ég drakk kakó he he. Þetta er samt svo óraunverulegtn fyrir okkur hér í frosti og kulda á hjara veraldar. En umfram allt farðu varlega.
Bestu kveðjur að heiman.
mamma.
mig langar að vera með þér þarna!
ReplyDeleteen er skype í tölvunni sem þú kemst í ?
Hæ Beta. Á meðan við böslum áfram í snjó og hálku á Akureyri, ert þú léttklædd að leika við ljónsunga þarna suður á hvelinu. Ég gæti alveg hugsað mér að skipta. Mamma þín þyrfti líka að komast í hitann. Hún hóstar eins og mótor og er komin með bassarödd af fjárans kvefi. Það passar illa í jólasöngvertíðinni. Þau Garðar komu í heimsókn í Norðurgötuna í kvöld og við áttum notalega stund.
ReplyDeleteÉg bíð spennt eftir að þú setjir inn myndir og svo máttu alveg spurja hvort ekki séu not fyrir gamla kerlingu í fílaskítmokstur... hehehe...
Í huganum áttu að taka upp pakka frá mér. Hann er fullur af snjó og jólaljósum. Hafðu það nú gott og njóttu allra daganna. Þú færð líklega heimþrá annað slagið - en þá skaltu hugsa um hvað það verður gaman að minnast þessa tíma og að það eru ekki margir sem eiga þess kost að fara svona ferð. Þetta segi ég af reynslu þar sem ég var í ár að heiman þegar ég var 18 ára.
Kær kveðja.
Jónína
Tu aettir bara ad koma hingad jonina...Tad er ein herna yfir fimmtugt og hun nytur sin svo vel =)
ReplyDeletekv.Elisabet
hahaha þú ert yndisleg :D
ReplyDelete